Landsbankinn hf.: Lætur af störfum hjá Landsbankanum


Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar Landsbankans, hefur sagt starfi sínu lausu hjá bankanum, sem hún hefur gegnt frá árinu 2010. Hún hefur þegar látið af störfum.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir segir: „Ég kveð nú Landsbankann með stolti eftir ellefu ánægjuleg og viðburðarík ár. Hér hef ég öðlast mikla reynslu og fengið tækifæri til að vinna með einstaklega öflugu fólki að krefjandi verkefnum.“

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: „Hrefna Ösp hefur unnið frábært starf fyrir Landsbankann. Hún stýrði enduruppbyggingu eignastýringar bankans og studdi við uppbyggingu Landsbréfa. Hrefna Ösp hefur verið brautryðjandi á Íslandi í sjálfbærni og ábyrgum fjárfestingum. Hún var drifkrafturinn í stofnun IcelandSIF og hreif markaðinn með sér í nýrri hugsun. Hrefna Ösp er kraftmikill stjórnandi sem hefur náð miklum árangri og verið framúrskarandi liðsmaður í framkvæmdastjórn Landsbankans.“

Nánari upplýsingar veita: 

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is               

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.is