Reginn hf. - Útboð skuldabréfa



Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) heldur lokað útboð á skuldabréfum félagsins þriðjudaginn 21. september næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í skuldabréfaflokkinum REGINN280130.

REGINN280130 er verðtryggður flokkur sem ber 2,5% vexti og hefur lokagjalddaga þann 28. janúar 2030 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga þegar eftirstöðvar höfuðstóls greiðast upp. Stærð flokksins er nú 8.020 m.kr. að nafnverði

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 28. september 2021 og sótt verður um skráningu skuldabréfanna á markaði Nasdaq Iceland.  

Kröfur samkvæmt skuldabréfunum eru tryggðar samkvæmt almenna tryggingarfyrirkomulaginu.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is  - S: 512 8900 / 899 6262