Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 39 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 197.200.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
27.9.202109:49:052.000.00024,0048.000.000
28.9.202112:35:571.000.00024,8024.800.000
28.9.202112:40:541.000.00024,8024.800.000
30.9.202110:02:442.000.00024,8049.600.000
1.10.202110:47:222.000.00025,0050.000.000
Samtals 8.000.000 197.200.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 91.500.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 99.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,09% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.390.287.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.