Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 40 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 5.771.417 eigin hluti að kaupverði 148.548.275 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
5.10.202114:10:282.000.00025,8051.600.000
6.10.202109:49:271.771.41725,6045.348.275
7.10.202114:02:151.000.00025,8025.800.000
7.10.202115:03:311.000.00025,8025.800.000
Samtals 5.771.417 148.548.275

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 99.500.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 105.271.417 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,164% af útgefnum hlutum í félaginu, en tilkynnt var um hlutafjárhækkun þann 4. október s.l. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.538.835.775 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.