Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39 og 40

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. september 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 1. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 30. september 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 39. og 40. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði samtals 75.000.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
1.10.202111:26250.00075,00018.750.000250.000
4.10.202111:29100.00075,0007.500.000350.000
4.10.202111:33150.00075,00011.250.000500.000
5.10.202111:18250.00074,75018.687.500750.000
6.10.202110:02250.00075,25018.812.5001.000.000
  1.000.000 75.000.0001.000.000

  
Reitir hafa nú keypt samtals 1.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 25% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 75.000.000 kr. sem samsvarar 25% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 1.000.000 hluti, eða 0,13% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 300 milljónir króna.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is