Hagar hf. birta uppgjör 2. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2021, eftir lokun markaða, þriðjudaginn 19. október nk.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, miðvikudaginn 20. október kl. 08:30. Þar mun Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Fundinum verður auk þess varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://vimeo.com/event/1366935/embed/250950380e
Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.