Kaldalón hf.: Kaup á fasteignasöfnum, sala á þróunarlóð við Steindórsreit


Kaldalón hf. hefur náð samkomulagi við Eignabyggð ehf. um kaup á félögunum Hellubyggð ehf. og Vallarbyggð ehf. Helstu eignir félaganna eru fasteignir að Suðurhrauni 10, Garðabæ, annars vegar og Íshellu 1, Hafnarfirði, hins vegar.

Suðurhraun 10 er 7.075 m2 vöruhúsnæði og hýsir m.a. vöruhús IKEA. Íshella er 7.700 m2 vöru- og geymsluhúsnæði. Heildarkaupverð í viðskiptum er samtals kr. 3.780 milljónir króna, en yfirteknar skuldir nema u.þ.b. kr. 2.360 milljónum.

Sem endurgjald í viðskiptunum afhendir Kaldalón m.a. félagið U22 ehf. en helsta eign þess er þróunarlóð við Steindórsreit þar sem leyfi er til byggingar á um 7.600 m2 íbúðarhúsnæðis auk atvinnurýma. Áætlað virði eigna Kaldalóns í viðskiptunum er kr. 1.845 milljónir sem er um kr. 170-260 milljónir umfram bókfært virði. Mismunur er gerður upp með tryggingarbréfi sem greiðist upp árið 2023.

Viðskiptin eru háð endanlegri kaupsamningsgerð, áreiðanleikakönnun, samþykki stjórna kaupanda og seljenda og samþykki lánveitenda. Stefnt er að því að kaupin komi til framkvæmda eigi síðar en 1. desember 2021.

Samhliða ofangreindum viðskiptum hefur Kaldalón hf. keypt fasteignina að Fiskislóð 23-25 sem m.a hýsir starfsemi Geymslna, dótturfélags Securitas. Kaupverð eignarinnar er 1.200 milljónir króna. Greiðsla fer fram með lántöku, reiðufé og útgáfu nýs hlutafjár í Kaldalóni sem nemur kr. 200 milljónum að markaðsvirði. Gengi útgáfunnar miðast við dagslokagengi á þeim degi sem kauptilboð var samþykkt, eða kr. 1,85 á hlut.  Samtals verða því gefnir út 108.108.108 nýir hlutir.

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri:
„Í dag tilkynnum við um kaup á fasteignum fyrir um fimm milljarða króna, og stækkum þannig töluvert eignasafn okkar. Með kaupum á vöruhúsum og geymsluhúsnæði á lykilstaðsetningum á höfuðborgarsvæðinu erum við að tryggja okkur eignir sem verða sífellt verðmætari í breyttum heimi verslunar og þjónustu. Vöruhús eru nauðsynlegir innviðir þegar kemur að aukinni netverslun og heimsendingum. Hvað varðar sölu á Steindórsreitnum þá sýnir þetta enn og aftur að okkur er að takast að vinna afskaplega vel úr þróunarbanka félagsins.“