Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 41 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 265.200.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
11.10.202110:41:562.000.00026,2052.400.000
12.10.202109:56:142.000.00026,2052.400.000
13.10.202113:32:561.000.00026,2026.200.000
13.10.202115:04:551.000.00026,4026.400.000
14.10.202110:29:581.000.00026,9026.900.000
14.10.202110:35:241.000.00026,9026.900.000
15.10.202109:52:552.000.00027,0054.000.000
Samtals 10.000.000 265.200.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 105.271.417 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 115.271.417 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,369% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.804.035.775 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið átti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.