Kvika mun halda lokað útboð á verðtryggðum skuldabréfum í flokknum KVB 21 02 fimmtudaginn 21. október. Áður hefur verið útgefið í flokknum að nafnvirði 2.180.000.000 kr. og eru skuldabréfin skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru verðtryggð vaxtagreiðslubréf með einni höfuðstólsgreiðslu á gjalddaga, 25. maí 2027, og bera fasta 1% vexti sem greiddir eru árlega.
Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekin verður.
Uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 27. október 2021.
Markaðsviðskipti Kviku hafa umsjón með útboðinu og er tekið á móti tilboðum á netfangið utbod@kvika.is til klukkan 16:00 fimmtudaginn 21. október.