Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. september 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 1. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 30. september 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 41. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 76.875.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
11.10.2021 | 14:29 | 250.000 | 76,500 | 19.125.000 | 1.250.000 |
12.10.2021 | 10:17 | 250.000 | 76,500 | 19.125.000 | 1.500.000 |
13.10.2021 | 13:05 | 250.000 | 76,500 | 19.125.000 | 1.750.000 |
14.10.2021 | 11:17 | 250.000 | 78,000 | 19.500.000 | 2.000.000 |
1.000.000 | 76.875.000 | 2.000.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 50,00% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 151.875.000 kr. sem samsvarar 50,63% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 2.000.000 hluti, eða 0,26% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 300 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is