Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið


Í viku 42 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 1.984.883 eigin hluti að kaupverði 54.385.794 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
18.10.202109:56:121.984.88327,4054.385.794
Samtals 1.984.883 54.385.794

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 115.271.417 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 117.256.300 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,410% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.858.421.569 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 117.256.300 hlutum og er kaupum samkvæmt eindurkaupaáætlun því lokið. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið átti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin var í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta yrði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.