Meðfylgjandi má finna staðfestingu KPMG ehf. á skýrslum Haga hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu HAGA021029 og HAGA181024. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar hálfsárs- og ársreiknings félagsins en hálfsársuppgjör Haga var birt 19. október sl.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Haga hf. og voru skýrslur félagsins um fjárhagslegar kvaðir því staðfestar.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, geg@hagar.is
Viðhengi
- HAGA021029 staðfesting á fjárhagslegum kvöðum m.v. 31.8.2021
- HAGA181024 staðfesting á fjárhagslegum kvöðum m.v. 31.8.2021