Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 3. júní 2021 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 25. október nk. Endurkaupin munu að hámarki nema 115.423.288 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Félagið á enga eigin hluti í dag. Áætlunin er í gildi til 1. júní 2021, eða fram að aðalfundi félagsins 2022, hvort sem fyrr verður, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í höndum Arctica Finance hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 780.126 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Nasdaq Iceland í september 2021. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði á síðustu óháðu viðskiptum.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500.