Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. september 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 1. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 30. september 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 42. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.400.000 eigin hluti að kaupverði 112.962.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
18.10.2021 | 13:54 | 250.000 | 80,500 | 20.125.000 | 2.250.000 |
19.10.2021 | 09:50 | 200.000 | 82,000 | 16.400.000 | 2.450.000 |
19.10.2021 | 09:42 | 250.000 | 82,500 | 20.625.000 | 2.700.000 |
20.10.2021 | 10:24 | 250.000 | 79,750 | 19.937.500 | 2.950.000 |
20.10.2021 | 10:22 | 200.000 | 80,000 | 16.000.000 | 3.150.000 |
21.10.2021 | 09:47 | 250.000 | 79,500 | 19.875.000 | 3.400.000 |
1.400.000 | 112.962.500 | 3.400.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 3.400.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 85% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 264.837.500 kr. sem samsvarar 88,28% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 3.400.000 hluti, eða 0,44% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 300 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is