Reginn hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2021



Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2021, eftir lokun markaða fimmtudaginn 4. nóvember 2021.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar föstudaginn 5. nóvember nk. kl. 8:30 á jarðhæð The Reykjavík EDITION Hotel, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Aðgengi úr bílakjallara Hafnartorgs / Hörpu upp stiga og rampa við hótelið.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://vimeo.com/event/1390905/embed/c664776dac


Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. 

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262