Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Kaup á þremur verslunareignum af Festi fasteignum ehf.

Með vísan til fyrri tilkynninga um kaup Reita á verslunareignum af Festi fasteignum ehf. sem sjá má hér og hér, tilkynnist hér með að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt og var kaupsamningur undirritaður í dag. 

Afhending eignanna mun fara fram 1. nóvember 2021. Endanlegt kaupverð er 3.231 m.kr. Um er að ræða um 10.000 leigufermetra af vönduðu verslunarhúsnæði sem eru í útleigu til fjölmargra öflugra leigutaka, þar einna helst Krónunnar sem stendur fyrir tæplega 50% af leigutekjunum. Leigutekjur á ársgrunni nema um 260 m.kr. og er meðaltími leigusamninga um 10 ár. Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 200 m.kr. á ársgrundvelli.

Nánari upplýsingar veita:
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags í síma 660 3320 og á gudjon@reitir.is
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita fasteignafélags í síma 669 4416 og á einar@reitir.is