Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 28. október sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæðum II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 117.256.300 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.
Samkvæmt 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 skal útgefadi, ef hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á síðasta viðskiptadegi mánaðar birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Framangreind hlutafjárhækkun hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.892.769.932 að nafnvirði. Þar af eru eigin hlutir 117.256.300 að nafnvirði, en auk þess á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti að nafnvirði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé utan eigin hluta.

Óskað verður eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og sótt verður um töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.