Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021


Kynningarfundur 10. nóvember 2021

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 9. nóvember 2021.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjör fjórðungsins. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 10. nóvember nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir lok dags 9. nóvember með því að smella hér.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.com.