Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 44. viku 2021 keyptu Hagar hf. 2.500.000 eigin hluti fyrir kr. 160.250.000 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
1.11.2021 09:31 500.000 63,75 31.875.000 2.835.000
2.11.2021 09:44 500.000 64,00 32.000.000 3.335.000
3.11.2021 09:33 500.000 64,00 32.000.000 3.835.000
4.11.2021 12:01 500.000 64,75 32.375.000 4.335.000
5.11.2021 10:52 500.000 64,00 32.000.000 4.835.000
Samtals 2.500.000 160.250.000 4.835.000

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 25. október 2021, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 22. október 2021.

Hagar hafa keypt samtals 4.835.000 hluti í félaginu sem samsvarar 4,19% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 310.106.250 sem samsvarar 62,02% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,42% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.154.232.879.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 115.423.288 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 1. júní 2021, eða fram að aðalfundi félagsins 2022, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995,  5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.