Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 44. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 758.524 eigin hluti að kaupverði 62.582.492 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
1.11.202111:39250.00082,50020.625.0005.037.968
2.11.202112:00250.00082,50020.625.0005.287.968
3.11.202110:50250.00082,50020.625.0005.537.968
5.11.202115:098.52483,000707.4925.546.492
  758.524 62.582.4925.546.492

Reitir hafa nú keypt samtals 1.708.524 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 28,48% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 139.957.492 kr. sem samsvarar 27,99% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 5.546.492 eigin hluti, eða um 0,71% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is