Kvika banki hf.: Kvika birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs miðvikudaginn 10. nóvember 2021


Kvika banki hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021 í dag, miðvikudaginn 10. nóvember 2021, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir fjárfesta verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 8:30, í höfuðstöðvum bankans, á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður aðgengileg fyrir fundinn.

Fundurinn verður einnig með rafrænum hætti á eftirfarandi vefslóð: https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/fjarfestakynning-11-november-2021/

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is.