Kvika banki hf.: Kvika gefur út skuldabréf til þriggja ára í breskum pundum


Kvika hefur í dag gefið út skuldabréf í breskum pundum að fjárhæð GBP 11.400.000 í nýjum skuldabréfaflokki bankans KVIKA 24 1119. Skuldabréfin eru til þriggja ára og bera fljótandi 3 mánaða LIBOR vexti auk 1,75% vaxtaálags.

Skuldabréfin verða skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í næstu viku.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar í síma 540-3200.