Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 45. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.322.000 eigin hluti að kaupverði 105.909.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
8.11.2021 | 11:39 | 22.000 | 82,250 | 1.809.500 | 5.568.492 |
9.11.2021 | 11:57 | 200.000 | 81,500 | 16.300.000 | 5.768.492 |
9.11.2021 | 15:21 | 250.000 | 81,000 | 20.250.000 | 6.018.492 |
10.11.2021 | 10:18 | 200.000 | 80,000 | 16.000.000 | 6.218.492 |
11.11.2021 | 11:00 | 200.000 | 80,000 | 16.000.000 | 6.418.492 |
12.11.2021 | 10:21 | 250.000 | 79,000 | 19.750.000 | 6.668.492 |
12.11.2021 | 09:39 | 200.000 | 79,000 | 15.800.000 | 6.868.492 |
1.322.000 | 105.909.500 | 6.868.492 |
Reitir hafa nú keypt samtals 3.030.524 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 50,51% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 245.866.992 kr. sem samsvarar 49,17% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 6.868.492 eigin hluti, eða um 0,88% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is