Brim: Rafrænn kynningarfundur fyrir uppgjör þriðja ársfjórðungs



Brim hf. birtir uppgjör og fjárfestakynningu vegna þriðja ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða fimmtudaginn 18. nóvember 2021.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 18. nóvember næstkomandi og hefst kl. 16:30, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.

Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@brim.is. Spurningum verður svarað í lok fundar.

Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða fjarfestatengsl@brim.is