Kvika banki hf.: TM tryggingar hf. hefur selt eignarhlut sinn í Kviku banka hf.


Líkt og fram hefur komið í tilkynningum frá Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) átti TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti í bankanum að nafnvirði við sameiningu TM hf. og Kviku.

TM tryggingar hf. seldi í dag alla hluti sína í Kviku. Hlutafé bankans stendur í dag í kr. 4.892.769.932 að nafnvirði og þar af eru eigin hlutir kr. 117.256.300 að nafnvirði, líkt og tilkynnt hefur verið um.