Kvika banki hf.: Fjárfestadagur Kviku 26. nóvember


Kvika mun halda fjárfestadag bankans þann 26. nóvember næstkomandi frá kl. 13:00 til 16:30.

Á viðburðinum munu stjórnendur Kviku kynna helstu breytingar sem orðið hafa á rekstri og viðskiptalíkani félagsins í kjölfar samruna, auk þess að kafa dýpra í rekstur einstakra sviða. Stefna samstæðunnar verður kynnt og farið verður yfir helstu vaxtartækifæri ásamt lykilþróun og framtíðarsýn á fjárhag.

Hægt verður að nálgast beint streymi af fundinum með því að skrá sig hér.

Kynningar verða fluttar á íslensku en kynningarefni er allt á ensku og verður aðgengilegt stuttu fyrir viðburðinn á heimasíðu Kviku.

Fyrir nánari upplýsingar eða fyrirspurnir, vinsamlegast hafið samband við fjarfestatengsl@kvika.is