Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 46. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 450.000 eigin hluti að kaupverði 36.350.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
15.11.2021 | 14:39 | 250.000 | 81,000 | 20.250.000 | 7.118.492 |
16.11.2021 | 09:31 | 200.000 | 80,500 | 16.100.000 | 7.318.492 |
450.000 | 36.350.000 | 7.318.492 |
Reitir hafa nú keypt samtals 3.480.524 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 58,01% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 282.216.992 kr. sem samsvarar 56,44% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 7.318.492 eigin hluti, eða um 0,94% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is