Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Hækkun á útgáfuáætlun skuldabréfa

Stjórn Reita ákvað á fundi sínum í dag að hækka áður birta útgáfuáætlun félagsins á grundvelli núgildandi grunnlýsingar úr 10 milljörðum kr. að nafnverði í 18 milljarða kr. að nafnverði, en félagið hefur þegar gefið út skuldabréf að þeim mörkum sem fyrri áætlun sagði til um.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 og á einar@reitir.is