Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Útboð á skuldabréfum 8. desember 2021

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 8. desember næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki REITIR150537. Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2037 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Meðallíftími flokksins (e. duration) á útgáfudegi er um 10 ár. Flokkurinn ber 1,75% fasta ársvexti en greiðslur vaxta og afborgana verða á tveggja mánaða fresti. Óskað verður eftir því að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 15. desember 2021.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. a- og b-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416 og Matei Manolescu, Markaðir, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími: 522 4008.