Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 48

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 48. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 728.748 eigin hluti að kaupverði 60.166.088 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
29.11.202109:40200.00082,00016.400.0008.418.492
30.11.202109:3528.74881,0002.328.5888.447.240
1.12.202114:46250.00083,00020.750.0008.697.240
2.12.202109:40250.00082,75020.687.5008.947.240
  728.748 60.166.0888.947.240

Reitir hafa nú keypt samtals 5.109.272 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 85,15% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 417.083.080 kr. sem samsvarar 83,42% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 8.947.240 eigin hluti, eða um 1,15% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is