Skeljungur hf.: Þrjú dótturfélög taka til starfa


Í tilkynningu Skeljungs 9. september sl. kom fram að stjórn Skeljungs hafi til viðbótar við stofnun félags utan um rekstur og útleigu á birgðastöðvum í eigu félagsins ákveðið að skerpa enn frekar á áherslum í rekstri með uppskiptingu og stofnun tveggja nýrra og sjálfstæðra dótturfélaga um annars vegar starfsemi á einstaklingssviði og hins vegar starfsemi á fyrirtækjasviði. Ákvörðun stjórnar var háð samþykki hluthafa sem samþykkti uppskiptinguna á hluthafafundi 7. október, sbr. tilkynning þar um þann sama dag.

Uppskiptingin er nú komin til framkvæmda og hafa þrjú sjálfstæð dótturfélög Skeljungs hf. tekið til starfa. Markmiðið er eins og áður hefur verið upplýst um að skerpa á áherslum í rekstri, en Skeljungur hf. verður móðurfélag rekstrarfélaganna og munu verkefni þess í auknum mæli snúa að stýringu eignarhluta í rekstrarfélögunum auk annarra fjárfestinga eftir atvikum.  Skeljungur hf. verður áfram skráð félag á hlutabréfamarkaði.

Dótturfélögin eru:

Orkan IS ehf. Starfsemin er einkum á sviði þjónustu til einstaklinga, svo sem rekstur þjónustustöðva Orkunnar, Extra, 10-11, Löðurs bílaþvottastöðva, apóteka Lyfsalans og Lyfjavals, Íslenska vetnisfélagsins og Gló. Félagið mun auk þess fara með eignarhald í félögunum Brauð & Co og WEDO (Heimkaup, Hópkaup, Bland).

Forstjóri Orkunnar IS ehf. er Árni Pétur Jónsson.

Skeljungur IS ehf. Starfsemin er einkum sala og þjónusta við fyrirtæki, dreifing, innkaup og heildsala á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku verður einnig hluti af starfseminni. Skeljungur IS er ennfremur umboðsaðili Shell á Íslandi og mun auk þess fara með eignarhald í Barki, EAK og Fjölveri.

Framkvæmdastjóri Skeljungs IS ehf. er Þórður Guðjónsson.

Gallon ehf. Starfsemin er einkum í rekstri og útleigu á birgðastöðvum um land allt ásamt rekstri birgðastöðva á flugvöllum. Í því felst m.a. móttaka birgðaskipa, afgreiðsla til skipa og í olíubíla. Gallon mun fara með eignarhald í EBK og Tollvörugeymslunni.

Framkvæmdastjóri Gallon ehf. er Már Erlingsson.

Í viðhengi er núgildandi skipurit samstæðu Skeljungs. Skeljungur áformar að halda fjárfestadag í byrjun næsta árs.

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is.

Viðhengi



Attachments

Skipurit - Structure Chart