Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 8. desember 2021

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 8. desember 2021 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í verðtryggða flokknum REITIR150537.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 6.460 m.kr. og var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 4.690 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,85%. 

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna. 

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð miðvikudaginn 15. desember næstkomandi og óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið. 

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfa verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. 

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími 669 4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími 522 4008.