Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 49. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 250.000 eigin hluti að kaupverði 21.375.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
7.12.2021 | 09:47 | 250.000 | 85,500 | 21.375.000 | 9.197.240 |
250.000 | 21.375.000 | 9.197.240 |
Reitir hafa nú keypt samtals 5.359.272 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 89,32% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 438.458.080 kr. sem samsvarar 87,69% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 9.197.240 eigin hluti, eða um 1,18% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is