Skeljungur hf.: Framkvæmdastjóri stjórnarhátta og gæðamála segir upp störfum


Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnarhátta og gæðamála, hefur sagt starfi sínu lausu.

Gróa hefur starfað hjá Skeljungi frá árinu 2017 í margvíslegum störfum m.a. sem yfirlögfræðingur félagsins, regluvörður og ritari stjórnar. Frá árinu 2019 hefur Gróa setið í framkvæmdastjórn félagsins, nú síðast sem framkvæmdastjóri stjórnarhátta og gæða, mannauðs og menningar.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs:

„Undanfarin ár hefur Gróa Björg  verið einn af lykilstarfsmönnum félagsins og verið virkur þátttakandi í stefnumótun og rekstri þess.  Við þökkum Gróu fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/