Sýn hf.: Sölu á óvirkum farnetsinnviðum Sýnar hf. lokið


Uppgjör (e.closing)  Sýnar hf. og DigitalBridge Group Inc., áður Colony Capital Inc., í tengslum við sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins fór fram í dag. Endanlegt kaupverð, sem sjóðir tengdir DigitalBridge Group hafa nú innt af hendi, nemur 6,94 ma.kr. og ná viðskiptin til tæplega 200 sendastaða.  Fjárhæðin er lítið eitt lægri en áður hafði verið kynnt einkum þar sem sendastöðum fækkaði lítillega. Söluhagnaður verður því tæplega 6,5 ma.kr. Reikningshaldsleg meðferð söluhagnaðar liggur ekki endanlega fyrir, þ.e. hversu stór hluti af söluhagnaðinum verður færður í gegnum rekstur á söludegi. Samhliða viðskiptunum var gerður langtímasamningur, sem tryggja mun áframhaldandi aðgang félagsins að hinum óvirku farsímainnviðum. Allur virkur farsímabúnaður verður áfram í eigu Sýnar hf.

Sýn hf. mun halda fjárfestadag (e. capital markets day) klukkan 16:00 þann 13. janúar 2022 að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík.