Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Reita þann 11. mars 2021 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Áætlað er að kaupa nú allt að 5,5 milljónir hluta sem jafngildir 0,7% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 500 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst föstudaginn 17. desember næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 4. febrúar 2022. Útgefið hlutafé Reita er 778.476.201 hlutir og eru 9.837.968 hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 459.410 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu nóvember 2021.

Fossar markaðir hf. munu framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á einar@reitir.is.