Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 52

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 16. desember 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 17. desember 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 16. desember 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 52. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.159.297 eigin hluti að kaupverði 99.490.245 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
27.12.202110:06250.00085,75021.437.50010.630.768
27.12.202114:279.29785,000790.24510.640.065
29.12.202110:57250.00086,50021.625.00010.890.065
29.12.202115:23200.00086,00017.200.00011.090.065
30.12.202113:08250.00085,75021.437.50011.340.065
30.12.202115:17200.00085,00017.000.00011.540.065
  1.159.297 99.490.24511.540.065

Reitir hafa nú keypt samtals 1.702.097 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 30,95% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 146.087.145 kr. sem samsvarar 29,22% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 11.540.065 eigin hluti, eða um 1,48% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is