Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 3. ársfjórðungs 2021/22


Hagar hf. birta uppgjör 3. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. september til 30. nóvember 2021, eftir lokun markaða, miðvikudaginn 12. janúar nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 13. janúar kl. 08:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://vimeo.com/event/1696586/embed/7dfccd7e38 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.