Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 16. desember 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 17. desember 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 16. desember 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 1. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 103.775.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
4.1.2022 | 14:33 | 200.000 | 87,000 | 17.400.000 | 11.740.065 |
4.1.2022 | 15:24 | 250.000 | 87,000 | 21.750.000 | 11.990.065 |
5.1.2022 | 11:25 | 250.000 | 87,000 | 21.750.000 | 12.240.065 |
6.1.2022 | 11:33 | 250.000 | 85,750 | 21.437.500 | 12.490.065 |
7.1.2022 | 10:45 | 250.000 | 85,750 | 21.437.500 | 12.740.065 |
1.200.000 | 103.775.000 | 12.740.065 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.902.097 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 52,77% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 249.862.145 kr. sem samsvarar 49,97% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 12.740.065 eigin hluti, eða um 1,64% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is