Reginn hf.: – Tilkynning frá Tilnefningarnefnd Regins hf.



Tilnefningarnefnd Regins hf. auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Regins fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 10. mars 2022.

Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til nefndarinnar er til þriðjudagsins 25. janúar 2022 og skal senda þær á tilnefningarnefnd@reginn.is. Tilnefningar nefndarinnar um stjórn félagsins verða birtar samhliða birtingu fundarboðs aðalfundar, sem samkvæmt samþykktum félagsins er boðað til með skemmst þriggja vikna fyrirvara.

Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.

Tilnefningarnefnd Regins hf.