Islandsbanki hf.: Jákvæð afkomuviðvörun fyrir fjórða ársfjórðung 2021


Drög að uppgjöri fyrir 4F21 benda til þess að hagnaður bankans, eftir skatta, hafi numið 7,1 ma. kr. á fjórðungnum og að arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli hafi verið 14,2%. Greiningaraðilar höfðu spáð 5,0 ma. kr. hagnaði að meðaltali á ársfjórðungnum og 9,9% arðsemi eiginfjár (sjá hér). Er niðurstaðan því töluvert umfram arðsemismarkmið bankans og spár greiningaraðila. Til samanburðar nam hagnaður bankans eftir skatta 3,5 ma. kr. á 4F20 og arðsemi eiginfjár var 7,6%.

Samkvæmt drögunum, námu rekstrartekjur fjórðungsins 13,1 ma.kr. sem er 8,8% aukning frá 4F20. Þar af námu hreinar vaxtatekjur 8,6 ma. kr., hreinar þóknanatekjur 3,7 ma. kr. og hreinar fjármunatekjur 0,7 ma. kr. Rekstrarkostnaður fjórðungsins nam 6,3 ma. kr. samanborið við 6,6 ma. kr. á 4F20.

Frávik frá áliti greinenda skýrast af stærstum hluta af 1,1 ma. kr. tekjufærslu vegna aflagðrar starfsemi og vegna jákvæðrar virðisrýrnunar sem nam um 0,6 ma. kr. á fjórðungnum og er að mestu tilkomin vegna mats bankans um heldur betri horfur í íslenskri ferðaþjónustu. Til samanburðar færði bankinn um 1,8 ma. kr. til gjalda í virðisrýrnun á 4F20 sem tengdist að mestu leyti þeirri óvissu sem uppi var vegna COVID-19 faraldursins á þeim tíma.

Áréttað er að uppgjörið og kynningarefni fyrir fjórða ársfjórðung 2021 er enn í vinnslu og því geta áðurnefndar tölur tekið breytingum fram að birtingardegi þann 10. febrúar næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl – Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, ir@islandsbanki.is. Sími: 844 4033.
Samskiptastjóri – Björn Berg Gunnarsson, pr@islandsbanki.is. Sími: 844 4869.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.