Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 2

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 16. desember 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 17. desember 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 16. desember 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 2. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.514.879 eigin hluti að kaupverði 129.532.276 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
10.1.202215:02200.00085,00017.000.00012.940.065
10.1.202210:28250.00085,75021.437.50013.190.065
11.1.202210:18250.00085,00021.250.00013.440.065
12.1.202212:44114.87984,5009.707.27613.554.944
12.1.202209:44250.00085,00021.250.00013.804.944
13.1.202210:12250.00086,75021.687.50014.054.944
14.1.202212:00200.00086,00017.200.00014.254.944
  1.514.879 129.532.27614.254.944


Reitir hafa nú keypt samtals 4.416.976 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 80,31% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 379.394.421 kr. sem samsvarar 75,88% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 14.254.944 eigin hluti, eða um 1,83% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is