Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 16. desember 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 17. desember 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 16. desember 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 3. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 500.000 eigin hluti að kaupverði 43.625.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
19.1.2022 | 14:40 | 250.000 | 87,000 | 21.750.000 | 14.504.944 |
21.1.2022 | 15:05 | 250.000 | 87,500 | 21.875.000 | 14.754.944 |
500.000 | 43.625.000 | 14.754.944 |
Reitir hafa nú keypt samtals 4.916.976 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 89,40% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 423.019.421 kr. sem samsvarar 84,60% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 14.754.944 eigin hluti, eða um 1,90% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is