Leiðrétting: Islandsbanki hf.: Birting afkomu 4F2021


Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fjórða ársfjórðung 2021 eftir lokun markaða þann 10. febrúar 2022.

Rafrænn afkomufundur föstudaginn 11. febrúar kl.8.30 [leiðrétting send vegna rangs tíma fyrir önnur tímabelti en Reykjavík í enskri tilkynningu].

Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 11. febrúar kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans á fjórða ársfjórðungi. Fundurinn fer fram á ensku.

Skráning á fundinn fer fram á þessari síðu. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að honum loknum.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:

Ísland:+354 800 74 37
Danmörk:+45 354 45 577
Svíþjóð:+46 8 566 42 651
Noregur:+47 235 00 243
Bretland:+44 33 330 00 804
Bandaríkin:+1 631 913 1422

Aðgangskóði:  97538113#

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl, Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, ir@islandsbanki.is. Sími: 844 4033.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.


GlobeNewswire