Reginn hf. mun birta samþykkt ársuppgjör 2021, eftir lokun markaða fimmtudaginn 10. febrúar 2022.
Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar föstudaginn 11. febrúar nk. kl. 8:30 á jarðhæð The Reykjavík EDITION Hotel, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.
Aðgengi úr bílakjallara Hafnartorgs / Hörpu upp stiga og rampa við hótelið.
Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://vimeo.com/event/1788222/embed/e4ec9b7946
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu.
Boðið verður upp á morgunverð.
Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262