Skeljungur hf.: Árni Pétur Jónsson lætur af störfum sem forstjóri Skeljungs hf. Ólafur Þór Jóhannesson, aðstoðarforstjóri, hefur verið ráðinn sem forstjóri Skeljungs hf.


Árni Pétur Jónsson hefur látið af störfum sem forstjóri Skeljungs hf. að eigin ósk. Samhliða lætur hann einnig af störfum sem framkvæmdastjóri Orkunnar ehf., dótturfélags Skeljungs.

Ólafur Þór Jóhannesson, sem gengt hefur starfi aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs hefur verið ráðinn sem forstjóri Skeljungs hf. Hann mun einnig gegna starfi framkvæmdastjóra Orkunnar ehf. fyrst um sinn.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson (fjarfestar@skeljungur.is)

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/