Reginn hf.: - Reginn hf. birtir ársuppgjör 2021 – rafrænn kynningarfundur


Reginn hf. mun birta samþykkt ársuppgjör 2021, eftir lokun markaða fimmtudaginn 10. febrúar 2022.

Í tilkynningu frá félaginu þann 2. febrúar sl. boðaði Reginn til opins kynningarfundar. Með hliðsjón af sóttvarnasjónarmiðum hefur félagið tekið ákvörðun um kynningarfundurinn verði eingöngu rafrænn og verður hann haldinn föstudaginn 11. febrúar nk. kl. 8:30.

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið. Hægt er að senda fyrirspurnir á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og meðan á kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni.

Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://vimeo.com/event/1788222/embed/e4ec9b7946


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262