Reginn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 6 keypti Reginn 1.199.655 eigin hluti að kaupverði 41.108.179 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
8.2.202214:17:52399.88534,0013.596.090
9.2.202211:51:17399.88534,1013.636.079
11.2.202213:41:02399.88534,7013.876.010
Samtals 1.199.655 41.108.179
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar 2022.

Reginn átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 1.199.655 eigin hluti eða sem nemur 0,07% af útgefnum hlutum í félaginu.

Reginn hefur keypt samtals 1.199.655 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem 0,07% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 41.108.179 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262