Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Aðalfundur 11. mars 2022

Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 11.00, föstudaginn 11. mars 2022 í fundarsal 2 á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík.

Drög að dagskrá fundarins:

1. Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.
2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.
4. Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:
     a. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
     b. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum.
     c. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins:
         (i) Bætt inn ákvæði um að endurskoðandi félagsins skuli vera viðstaddur aðalfundi.
         (ii) Breyting á ákvæði um rafræna hluthafafundi.
         (iii) Breyting á ákvæði um kynjahlutföll í stjórn.
     d. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
     e. Tillaga um skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
5. Kosning stjórnarmanna félagsins.
6. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
7. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár.
8. Önnur mál, löglega upp borin.

Hjálagt er fundarboð, tillögur stjórnar og skýrsla tilnefningarnefndar.

Árs- og samfélagsskýrsla Reita 2021 hefur verið gefin út og er hún aðgengileg hér.

Viðhengi