Orkuveita Reyjavíkur – Skuldabréfaútboð 24. febrúar


Fimmtudaginn 24. febrúar 2022 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í grænum skuldabréfaflokki Orkuveitu Reykjavíkur, OR180242 GB.

OR180242 GB er óverðtryggður flokkur með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 4.198 milljónir í flokkinum.

Útgáfa skuldabréfaflokksins er í samræmi við áður samþykkta lántökuheimild Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2022.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar veita: 

Bjarni Freyr Bjarnason, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: Bjarni.Freyr.Bjarnason@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com